Yfir 170 fórust í flóðum

Manskætt flóð varð í Lýðveldinu Kongó í gær. Auk þess …
Manskætt flóð varð í Lýðveldinu Kongó í gær. Auk þess fórust 120 manns fyrr í vikunni í flóði í Rúanda en myndin er tekin þar í landi. AFP

Yfir 170 manns fórust í flóðum í Lýðveldinu Kongó í gær en mikið hefur rignt í héraðinu Suður-Kívú síðan í fyrradag. 

„Það eru um 176 látnir,“ sagði héraðsstjórinn Theo Ngwabije. „Þetta eru bráðabirgðatölur. Það á enn eftir að finna um 100 manns.“

Nokkur þorp á svæðinu fóru á bólakaf þegar ár ruddu sér leið yfir bakkana. Flóðin gripu með sér fólk og jafnvel heilu húsin.

Innocent Mupenda sem býr í héraðinu segir að það hafi byrjað að rigna síðdegis í fyrradag. Hann segir að móðir sín hafi farist í flóðinu, ásamt öllum 11 börnum hans. 

Sorgardagur verður haldinn á mánudag. Flaggað verður í hálfa stöng til minningar um látna samlanda, að því er segir í tilkynningu frá ríkisstjórn landsins.

Flóð urðu í Rúanda, nágrannaríki Lýðveldisins Kongós, fyrr í vikunni en þar fórust að minnsta kosti 127 manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert