Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús í Ósló vegna sýkingar og er reiknað með að þar dvelji hann um nokkurra daga skeið á meðan hann fær bót meina sinna. Frá þessu greinir konungshöllin í fréttatilkynningu í morgun.
Ástand Haraldar er þó stöðugt og hleypur Hákon krónprins í skarðið fyrir hann við embættisverk. Síðdegis í dag var ætlunin að Haraldur yrði við athöfn í tilefni frelsisdagsins, eða frigjøringsdagen, sem haldinn er hátíðlegur 8. maí ár hvert til að minnast þess er Noregur losnaði undan járnhæl þýska innrásarhersins vorið 1945. Sama dag er fallinna hermanna landsins minnst og dagur þeirra hafður í heiðri.
„Aðrar breytingar verða ekki á dagskrá konungs en þær að hann mætir ekki við Akershus-kastalann í dag,“ segir aðstoðarupplýsingafulltrúi konungshallarinnar, Sven Gjeruldsen, í samtali við Dagbladet.
Síðar í vikunni er gert ráð fyrir að konungur taki á móti Sergio Mattarella, forseta Ítalíu, sem þá er væntanlegur í opinbera heimsókn.
Haraldur konungur er orðinn 86 ára gamall og hefur verið tíður gestur sjúkrastofnana í Ósló síðustu ár. Síðast var hann lagður inn í desember, einnig vegna sýkingar. Árið 2021 gekkst hann undir skurðaðgerð á hné og árið 2020 var hann skorinn upp vegna skipta á gervihjartaloku sem fyrst var sett í hann árið 2005.
Þá greindist hann með krabbamein í þvagblöðru árið 2003 og var æxli fjarlægt úr blöðrunni með vel heppnaðri skurðaðgerð 8. desember það ár.