Kanna öfgatengsl skotmannsins

Beatrice Leon brestur í grát við blómahaf vegfarenda við verslunarmiðstöðina …
Beatrice Leon brestur í grát við blómahaf vegfarenda við verslunarmiðstöðina í Allen í dag. AFP/Joe Raedle

Rannsakendur skotárásarinnar í verslunarmiðstöðinni í Allen, úthverfi Dallas í Texas, sem kostaði átta manns lífið, auk skotmannsins, á laugardaginn velta því nú fyrir sér hvort maðurinn, Mauricio Garcia, hafi haft tengsl við hægriöfgahópa.

Hafa spurningar í þá veru kviknað þar sem Garcia klæddist flík með áletruninni RWDS, skammstöfun fyrir „Right Wing Death Squad“ eða hægrisinnaða dauðasveitin, er hann lét til skarar skríða.

Fýsir lögreglu að vita hvort öfgahægrihugmyndafræði hafi verið drifkrafturinn á bak við ódæðið á laugardaginn og þá – hafi svo verið – hvort Garcia hafi haft tengsl við hópa sem þá hugmyndafræði aðhyllast.

Vísað úr hernum

Frá þessu greinir bandaríska CBS-sjónvarpsstöðin og enn fremur því að rannsakendur fari nú yfir skrif og samskipti Garcia á samfélagsmiðlum með það fyrir augum að reyna að varpa frekari ljósi á þessi hugsanlegu tengsl eða hvað ellegar hafi vakað fyrir honum.

Fox News greinir frá því að tölvupóstfang með heitinu „deathdestructionandlove“, dauði, eyðilegging og ást, hafi tilheyrt Garcia og Greg Abbott, ríkisstjóri Texas, sagði sjónvarpsstöðinni WFAA að Garcia hefði gegnt herþjónustu en verið vísað úr hernum vegna efasemda um geðheilsu hans.

Hvort sem slík tengsl voru fyrir hendi eður ei hafa lögregluyfirvöld á staðnum slegið því föstu að Garcia hafi verið einn að verki þegar hann lagði til atlögu á fjórða tímanum síðdegis á laugardag að Texas-tíma.

CBS

FOX

New York Times

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert