Munu sigra Rússa, eins og nasistar voru sigraðir

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti sór þessi eið að hersveitir Rússa yrðu sigraðar, rétt eins og þýskir nasistar voru sigraðir í seinni heimsstyrjöldinni. 

Í dag eru 78 ár síðan Karl Dönitz, Þýskalandskanslari, undirritaði uppgjafarsáttmála fyrir hönd Þjóðverja, sem fól í sér skilyrðislausa uppgjöf herja Þýskalands árið 1945. 

„Allt hið gamla og illa sem nútíma Rússland stendur nú fyrir verður sigrað, eins og nasisminn var sigraður,“ sagði Selenskí í myndskeiði sem var birt á samfélagsmiðlum. 

Hann hefur lagt fram frumvarp til þingsins þess efnis að sigurdeginum svokallaða verði fagnað í dag, 8. maí í Úkraínu, eins og önnur Evrópuríki gera, en ekki á morgun, eins og Rússar gera.  

Selenskí sagði stjórnvöld í Rússlandi sek um „árásargirni, hernám og brottvísanir“, sem og „fjöldamorð og pyntingar“. 

„Öllu þessu verður svarað með sigri okkar – sigri Úkraínu og hins frjálsa heims.“

 

Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti.
Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seti. AFP/Úkraínska forsetahöllin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert