Sex mönnum, sem sjóræningjar rændu af dönsku olíuflutningaskipi vestur af Port Pointe-Noire í Lýðveldinu Kongó í mars, hefur verið sleppt úr haldi.
Danska skipafélagið Monjasa, eigandi skipsins, greindi frá því í yfirlýsingu að mennirnir séu nú öruggir, eftir að hafa verið látnir lausir í Nígeríu.
Danska ríkisútvarpið greinir frá því að enginn mannanna sé danskur ríkisborgari.
Í yfirlýsingunni sagði að mennirnir væru við góða heilsu þrátt fyrir lífsreynsluna. Þeir hafa gengist undir læknisskoðun og eru nú á leið til heimalanda sinna.
Óljóst er hvort skipafélagið greiddi lausnargjald vegna málsins.