Áströlsk kona á fimmtugsaldri var hætt komin nýverið þegar hún villtist af leið og festi bílinn sinn á víðáttum Viktoríufylkis í Suðaustur-Ástralíu. Konan hafði lítinn mat, ekkert vatn og eina vínflösku með í för.
Konunni, Lillian Ip, var bjargað eftir að hún hafði verið strand á svæðinu í fimm daga. Hún hafði verið á leiðinni að hitta móður sína en villtist með þessum afleiðingum. Til þess að halda sér gangandi drakk hún vín og borðaði sleikjóa.
BBC greinir frá því að viðbragðsaðilar hafi verið fegnir að Ip hafi haldið sig hjá bíl sínum, vegna þessa hafi reynst auðveldara að finna hana. Ip fannst um sextíu kílómetra frá næsta bæ en gat ekki gengið þangað vegna heilsufars.
Ip segist hafa haldið að hún myndi deyja en líkami hennar hafi verið byrjaður að gefa sig á fimmta degi. Þá hafi hún skrifað bréf til fjölskyldu sinnar til að kveðja og sagst elska þau.
Það fyrsta sem hún hafi hugsað um eftir að henni var bjargað hafi verið að drekka vatn og reykja eina sígarettu.
„Ég þakka guði fyrir að lögreglukonan hafi verið með sígarettu,“ sagði Ip.
Hún var færð á sjúkrahús og meðhöndluð vegna ofþornunar en er nú komin heim til Melbourne.