Stærsta drónaárás Rússa til þessa

Fjölbýlishús í Kænugarði sem orðið hefur fyrir drónaárás Rússa.
Fjölbýlishús í Kænugarði sem orðið hefur fyrir drónaárás Rússa. AFP

Loftvarnaflautur ómuðu um götur Úkraínu eftir að Rússar hófu dróna- og eldflaugaárásir víðs vegar í landinu í nótt.

Árásirnar hófust rétt eftir miðnætti og voru flestar af völdum íranskra sjálfseyðingardróna en það eru árásardrónar útbúnir sprengiefni. 

Einn látinn og fjöldi særðist

Alla vega einn lést af völdum árásarinnar í suðurhluta Odessa-héraðs og vöruhús Rauða krossins á svæðinu varð eyðileggingunni að bráð. Talið er að fjöldi fólks hafi særst í árásunum, en ekki hefur verið staðfest hve margir.

Vítalí Klitsjkó, borgarstjóri Kænugarðs, segir Rússa hafa skotið um 60 drónum og sagði það stærstu árás Rússa til þessa.

Hann segir að 36 drónum hafa verið beint að Kænugarði og sprungið yfir borginni, en að lágmarki fimm manns hafi slasast í borginni. 

Að sögn yfirvalda í suðurhluta Kerson-héraðsins særðust að minnsta kosti átta manns, þar á meðal barn, í tveimur þorpum á svæðinu. 

Afneitar sigurdegi Sovétríkjanna

Árásin á Kænugarð er sú fjórða á síðastliðnum átta dögum og átti sér stað degi fyrir Sigurdag Rússa, árlegan hátíðardag til minningar um sigur Sovétríkjanna gegn Þýskalandi undir flokksræði nasista. Volodimír Selenskí forseti Úkraínu tilkynnti nýverið að deginum yrði héðan í frá fagnað sem degi Evrópu, í mótmælaskyni við Rússa. 

Evrópusambandið mun þurfa að samþykkja breytinguna. Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar Evr­ópu­sam­bands­ins, fundar með Selenskí um málið á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert