Stærsta kjarnorkuslysaæfing Noregs

Rússneski ísbrjóturinn 50 Let Pobedy er kjarnorkuknúinn og hefur oftar …
Rússneski ísbrjóturinn 50 Let Pobedy er kjarnorkuknúinn og hefur oftar en ekki verið á ferð við Noregsstrendur. Ljósmynd/Wikipedia.org/Anton Chmelev

Á morgun hefst í Bodø í Norður-Noregi stærsta kjarnorkuslysaæfing sem haldin hefur verið þar í landi, Arctic REIHN. Árum saman hafa öryggismál í tengslum við umferð kjarnorkuknúinna farartækja meðfram strandlengju Noregs verið til umræðu og standa norska landhelgisgæslan, Geislavarna- og kjarnorkuöryggisstofnun Noregs (DSA), Björgunarmiðstöð Norður-Noregs og Samfélagsöryggisstofnun að æfingunni.

„Umferð kjarnorkuknúinna farartækja meðfram strandlengjunni eykst hröðum skrefum,“ segir Per Strand, forstöðumaður DSA, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK og bætir því við að slys í tengslum við slík farartæki gætu leitt til þess að geislavirk efni kæmust í tengsl við andrúmsloftið.

Ekki forsvaranlegt að útiloka slys

„Slíkt getur haft miklar afleiðingar og því er mikilvægt að DSA og viðbragðsaðilar æfi viðbrögðin við slíkum atburði,“ segir Strand enn fremur, en atburðarásin, sem æfingin byggir á, snýst um sprengingu um borð í kjarnorkuknúnu skemmtiferðaskipi sem eyðileggur kjarnaofna þess og slasar hluta áhafnarinnar.

Að mati Samfélagsöryggisstofnunar er ekki forsvaranlegt að útiloka að kjarnorkutengd slys geti orðið um borð í farartækjum sem ganga fyrir kjarnorku þótt fátíð séu og segir Elisabeth Longva, deildarstjóri þar, að með því að æfa viðbrögð við slíkum slysum séu þeir sem fást þurfa við afleiðingar þeirra og björgun einfaldlega betur í stakk búnir til að standa andspænis þeim.

NRK

Bodøposten

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert