Týndir eftir „Viagra“-tínslu

Reiknað er með að fjöldi klifrara reyni að ná toppi …
Reiknað er með að fjöldi klifrara reyni að ná toppi Everest á næstu mánuðum en svo hátt þarf þó ekki að fara til að nálgast sveppinn Cordyceps sinensis sem finnst í rúmlega 3.500 metra hæð. AFP/Sebastian Berger

Þriggja göngumanna er saknað og tólf eru slasaðir í kjölfar snjóflóðs í hálendi Mugu-héraðsins í Norðvestur-Nepal á laugardaginn.

Var hópurinn að safna sveppnum Cordyceps sinensis sem þekktur er á svæðinu undir nafninu yarchagumba en í markaðslegu samhengi sem „Himalaya-Viagra“ í höfuðið á stinningarlyfinu þekkta.

Fyrir svepp þennan greiða Kínverjar veglegar upphæðir og nota við gerð grasalyfja sinna og fyrir vikið halda þúsundir Nepala í leit að yarchagumba, sem bókstaflega þýðir „planta að sumri, skordýr að vetri“.

Sveppurinn kominn í útrýmingarhættu

Sveppinn er aðeins að finna í yfir 3.500 metra hæð í fáeinar vikur ár hvert, sem er um þetta leyti, og er hann sníkill á lirfu nokkurri. Efnið eftirsótta er virkt í sveppnum á meðan hann er að festa sig við líkama lirfunnar sem hann dregur að lokum til dauða.

Engin rannsókn hefur slegið því föstu að sveppurinn eftirsótti hafi nokkur heilsubótaráhrif á fólk en Kínverjar trúa því að hann auki þeim ásmegin í kynlífi. Gera þeir te úr sveppnum eða bæta honum í súpu sem talin er vinna á ýmsum meinum, svo sem langvarandi þreytu og jafnvel krabbameini.

Fyrir vikið er sveppurinn í útrýmingarhættu ef marka má tölur frá náttúruverndarsamtökunum International Union for the Conservation of Nature sem segja fækkun innan tegundarinnar nema um þriðjungi síðustu fimmtán árin og hafa sett Cordyceps sinensis á lista sinn yfir tegundir sem teljast „viðkvæmar“ með tilliti til útrýmingar.

Klifurvertíðin er nú að hefjast í Nepal en þá munu hátt í þúsund manns reyna sig við topp Mount Everest. Þrír nepalskir leiðsögumenn fórust þar í síðustu viku þegar íshrun í hlíðum fjallsins þvingaði þá ofan í djúpa sprungu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert