Vilja rýna í einkaskilaboð til að hindra barnaníð

Dullkóðuð forrit eins og Snapchat þyrftu að rýna í milljónir …
Dullkóðuð forrit eins og Snapchat þyrftu að rýna í milljónir skilaboða notenda sinna yrði reglugerðin samþykkt. AFP

Fyrirhuguð reglugerð Evrópusambandsins, til að sporna við dreifingu á efni sem sýnir barnaníð, hefur siglt í strand. Lögfræðingar sambandsins telja reglugerðina, sem skyldar samskiptaforrit til þess að rýna í skilaboð notenda, ekki standast persónuverndarlög.

Samkvæmt umfjöllun breska dagblaðsins Guardian leggur fyrirhuguð reglugerð til svokallaðar „spjallstýringar“ (e. chat controls). 

Yrði slík reglugerð samþykkt þyrftu dulkóðuð samskiptaforrit líkt og Snapchat, WhatsApp og iMessage að kanna milljónir skilaboða, myndskeiða og mynda til að kanna hvort forritin hafi verið notuð til að dreifa á ofbeldisfullu efni gagnvart börnum. 

Segir reglugerðina dystópíska

Persónuverndarsinnar og þjónustuveitendur hafa varað við því að fyrirhuguð reglugerð ESB geti leitt til þess að dulkóðunarsamskiptaforrit eins og WhatsApp hverfi af evrópskum markaði. En lögfræðingar ESB óttast að fyrirhuguð reglugerð feli í sér alvarlega annmarka með tilliti til friðhelgi einkalífs og persónuupplýsingaverndar. 

Evrópudómstóllinn hefur áður úrskurðað að rýning í samskiptagögn séu aðeins réttlætanleg upp að vissu marki þegar um þjóðaröryggi er að ræða. Því sé ólíklegt að slíkt verði heimilað í baráttu gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. 

Patrick Breyer, þýskur Evrópuþingmaður og fulltrúi í borgarafrelsisnefnd þingsins, sendi ákall til sambandsins um að falla frá reglugerðinni og hefur lýst henni sem dystópískri. 

Tíu aðildarríki ESB: Belgía, Búlgaría, Kýpur, Ungverjaland, Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Rúmenía og Spánn, hafa aftur á móti lýst yfir stuðningi við reglugerðina og telja ekki tilefni til að breyta henni þrátt fyrir áhyggjur lögfræðinga sambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert