Að minnsta kosti 21 lést, þar af þrjú börn og tugir særðust að auki, þegar rútubifreið fór fram af brú í Madhya Pradesh í Indlandi í nótt.
Slysið átti sér stað suður af borginni Indore í Madhya Pradesh rétt fyrir klukkan níu í morgun að staðartíma eða upp úr klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma.
Fyrstu fregnir hermdu að 15 hafi látið lífið samstundis, en yfirmaður lögregluembættisins á staðnum segir að 21 hafi látist í það minnsta.
Yfirvöld í Indlandi segja bílstjórann hafa sofnað við stýrið, með þeim afleiðingum að rútubifreiðin hafi farið í gegnum vegrið og fram af brúnni. Hún hafi fallið um sex metra niður í árfarveg. Bílstjórinn er sagður hafa komist lífs af og flúið af vettvangi.
Um 150 þúsund banaslys verða í umferðinni á hverju ári á Indlandi, sem jafngildir einu mannsláti í umferðinni á um það bil fjögurra mínútna fresti. Um 1% allra bíla í heiminum eru í Indlandi en um 11% allra banaslysa í heiminum verða í landinu.