Farþegaflug með Virgin Galactic að hefjast

Sir Richard Branson, stofnandi Virgin Galactic.
Sir Richard Branson, stofnandi Virgin Galactic. AFP

Virgin Galactic ætlar að hefja aftur flugferðir út í geiminn í þessum mánuði.

Þetta verður fyrsta ferðalagið þangað í næstum tvö ár. Seint í næsta mánuði getur almenningur síðan flogið með flugfélaginu.

Leiðangurinn Unity 25 verður farinn seint í maí, þar sem fjórir starfsmenn Virgin Galactic verða um borð. Um mánuði síðar verður svo röðin komin að almennum geimferðalöngum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert