„Hlutleysi“ jafngildir því að vera í liði með Rússum

Annalena Baerbock, utanríkisráðherra Þýskalands, varaði utanríkisráðherra Kína við því að „hlutleysi” þegar kemur að stríðinu í Úkraínu væri það sama og að vera í liði með Rússum.

Með þessum ummælum jók hún þrýstinginn á kínversk stjórnvöld um að leggja meira af mörkum til að binda enda á átökin.

„Hlutleysi þýðir að vera í liði með árásaraðilanum,” sagði Baerbock á blaðamannafundi í Berlín, höfuðborg Þýskalands, með Qin Gang, utanríkisráðherra Kína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert