Allsherjar- og menntamálanefnd leggur til að Mariia Alekhina og Lucy Shtein, liðsmenn rússneska andófshópsins og hljómsveitarinnar Pussy Riot, öðlist íslenskan ríkisborgararétt.
18 manns eru á lista nefndarinnar og þar á meðal eru fimm Rússar. Alls sóttu 94 um ríkisborgararétt.
Sveitin Pussy Riot er þekktust fyrir mótmæli sín gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta árið 2012. Þá truflaði hópurinn messu sem fór fram í Kristskirkjunni í Moskvu. Frá því að innrás Rússa inn í Úkraínu hófst hefur hópurinn harðlega gagnrýnt rússnesk stjórnvöld.
Í fyrra var frá því greint að Mariia Alyokhina hefði flúið til Íslands í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Hún komst til landamæra Hvíta-Rússlands. Það tók hana þrjár tilraunir að komast úr Hvíta-Rússlandi en í þriðju tilraun fékk hún hjálp frá íslenska listamanninum Ragnari Kjartanssyni.
Ragnar útvegaði henni ferðaáritun í ónefndu evrópsku landi. Nokkrum dögum eftir að hún komst til Litháen ferðaðist hún til Íslands ásamt öðrum liðsmönnum sveitarinnar til að heimsækja Ragnar.
Lucy Schtein flúði Rússland í mars á seinasta ári. Hún sagði í viðtali við breska blaðið Guardian á seinasta ári að hún hefði klætt sig sem sendil til þess að komast úr landinu án eftirtektar.