Að minnsta kosti 12 Palestínumenn féllu í loftárás á Gasaströndina, þrjú fórnarlambanna voru herforingjar í samtökunum Islamic Jihad. Þá hafa heilbrigðisyfirvöld í Palestínu sagt þrjár konur og þrjú börn vera meðal hinna látnu. Tuttugu til viðbótar eru særðir.
Yfirvöld í Ísrael segjast hafa sett af stað aðgerðir gegn vígamönnum sem ógnuðu öryggi borgara. Samtökin Islamic Jihad hafa heitið því að svara fyrir árásina og er búist við að eldflaugum verði beint að Ísrael. Ísraelskir embættismenn eru sagðir vera að undirbúa margra daga átök.
40 ísraelskar orrustuþotur og þyrlur gerðu árásir í nokkrum bylgjum á Gasaströndina snemma í morgun. Ráðist var á heimili fólks og greip mikil skelfing um sig meðal íbúa. Miklar skemmdir hafa orðið á híbýlum fólks.
Til viðbótar við að fella yfirmenn í samtökunum Islamic Jihad segist ísraelski herinn hafa gert árás á 10 staði þar sem vopn voru framleidd og sex herstöðvar samtakanna.
Samtökin hafa staðfest að þrír herforingjar séu meðal hinna látnu.