Vill skotfærin afhent fyrr frá ESB

Selenskí og Ursula von der Leyen að loknum blaðamannafundinum.
Selenskí og Ursula von der Leyen að loknum blaðamannafundinum. AFP/Sergei Supinsky

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti óskaði eftir því að fá skotfæri afhent með skjótari hætti frá Evrópusambandinu, á fundi sínum í morgun með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar sambandsins.

„Við ræddum lykilatriði: Skjótari afhendingu á þessum skotfærum. Þörfin fyrir þau á vígvellinum er nú þegar til staðar,” sagði Selenskí á blaðamannafundi í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu.

Selenskí á blaðamannafundinum.
Selenskí á blaðamannafundinum. AFP/Sergei Supinsky

Selenskí gagnrýndi einnig þær takmarkanir sem nágrannaþjóðir Úkraínu sem eru í ESB settu á kornútflutning frá landinu og sagði þær koma Rússum vel.

„Allar takmarkanir á útflutningsvörur okkar eru algörlega óásættanlegar akkúrat núna. Þær verða aðeins til þess að árásarþjóð okkar styrkist,” sagði hann einnig á blaðamannafundinum.

„Við erum að bíða eftir því að ESB stöðvi allar takmarkanir eins fljótt og auðið er.”  

Sömuleiðis sagði Selenskí tíma kominn til viðræðna um aðild Úkraínu að ESB. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert