30 milljarða sáttagreiðsla

Merki Goldman Sachs í kauphöllinni í New York.
Merki Goldman Sachs í kauphöllinni í New York. AFP/Michael M. Santiago

Goldman Sachs ætlar að greiða 215 milljónir dollara, eða um 30 milljarða króna, í sáttagreiðslu í dómsmáli sem hefur staðið yfir í langan tíma gegn fjárfestingabankanum.

Í málinu voru núverandi og fyrrverandi starfsmenn bankans sakaðir um kynjamisrétti og kynferðislega áreitni.

Alls voru 75 kærur lagðar fram á vinnustaðnum þar sem starfsmenn voru m.a. sakaðir um snertingar, óviðeigandi ummæli og beiðnir um kynlíf. Einnig voru uppi ásakanir um launamisrétti í garð kvenna og að konur hafi ekki fengið stöðuhækkanir á grundvelli kynferðis.

Sáttagreiðslan snýr að um 2.800 konum sem voru við störf hjá fyrirtækinu frá upphafi aldarinnar þangað til í mars á þessu ári.

„Eftir umfangsmikil málaferli í rúman áratug hafa báðir aðilar samþykkt að leysa málið,” sagði Jacqueline Arthur, mannauðsstjóri Goldman Sachs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert