Bandarískur karlmaður á áttræðisaldri var í gær handtekinn af filippseysku lögreglunni eftir að lík kærustu hans fannst í tunnu á heimili þeirra í borginni Bacoor á Filippseyjum, skammt frá höfuðborginni Maníla.
Konan var á fimmtugsaldri en búið var að setja lík hennar í ruslapoka og koma fyrir í blárri tunnu þegar hún fannst.
Lögreglan heimsótti heimili kærustuparsins eftir að uppkominn sonur konunnar hafði samband þegar ekki hafði sést til móður hans í fjóra daga. Þá kvaðst hann hafa fundið slæman fnyk á heimili þeirra.
Lögreglan gerði þrjá hnífa og reipi upptækt við húsleitina. Þá var kærastinn færður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa orðið konunni að bana.
Talsmaður bandaríska sendiráðsins á Filippseyjum sagði sendiráðið upplýst um málið, en varðist fregna þegar fréttastofa-AFP hafði samband.