Dorrit harmar handtöku Khans

Imran Khans og Dorrit Moussaieff.
Imran Khans og Dorrit Moussaieff. Samsett mynd

„Sorglegt að heyra af handtöku Imrans, hann hef ég þekkt í meira en hálfa öld, hann er ekki spilltur!“ skrifar Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, á Instagram og harmar þar handtöku Imrans Khans, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans.

Eins og mbl.is fjallaði um í gær handtóku hermenn úr deild utan stjórnarhers landsins Khan þar sem hann var staddur í Hæstarétti í Islamabad og lét í té lífsýnaupplýsingar vegna spillingarmáls er hann sætir ákæru fyrir.

Skjáskot af Instagram

Greina fjölmiðlar frá því að Khan hafi komið fyrir rétt í Islamabad í morgun til að hlýða á ákæruna og er reiknað með að dómari úrskurði hann í fjórtán daga gæsluvarðhald.

Forsætisráðherranum fyrrverandi, sem lét af embætti í kjölfar þess er þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum í fyrravor, er gefið að sök að hafa keypt ódýrt ýmsa dýrgripi af ríkinu, sem hann áður hafði þegið að gjöf sem forsætisráðherra, og selt þá svo fyrir hærra verð, þar á meðal verðmætt armbandsúr.

Al Jazeera

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert