Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum til þriggja ára, Markus Raikkonen. Bæði greindu þau frá skilnaðinum á Instagram-reikningum sínum í dag.
„Við erum þakklát fyrir 19 ár saman og ástkæra dóttur okkar. Við munum áfram vera bestu vinir.“
Saman eiga þau fimm ára dóttur, en þau giftu sig árið 2020 í miðjum heimsfaraldri. Raikkonen lét nýverið af störfum sem fjárfestir og lék áður knattspyrnu fyrir félagið TPV Tampere.
Marin hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu, en flokkur hennar, Jafnaðarmannaflokkurinn, tapaði völdum sínum í þingkosningum í apríl. Íhaldsflokkur landsins bar sigur úr býtum og Marin tilkynnti í kjölfarið að hún hygðist segja af sér sem formaður flokksins í haust.
Marin játaði einnig á blaðamannafundi í apríl að árin fjögur í embætti forsætisráherra hefðu reynst sér erfið og kvaðst ekki búast við því að gegna ráðherraembætti í næstu ríkisstjórn.