Leggja niður Rauða krossinn í landinu

Þingið hefur skipað heilbrigðisráðuneytinu í Níkaragva að koma á fót …
Þingið hefur skipað heilbrigðisráðuneytinu í Níkaragva að koma á fót nýrri stofnun í landinu. AFP

Þjóðþing Níkaragva hefur samþykkt að leggja niður starfsemi Rauða krossins í landinu. Þingið hefur sakað hjálparsamtökin um að „vega að friði og stöðugleika“ í mótmælum sem áttu sér stað gegn ríkisstjórninni árið 2018.

Rauði krossinn segir að félagsmenn hafi aðeins verið viðstaddir á mótmælunum í þeim tilgangi að hjálpa slösuðum mótmælendum.

Þingið, sem er að megni skipað fólki úr flokki Daniels Ortega, forseta landsins, hefur skipað heilbrigðisráðuneytinu í Níkaragva að koma á fót „nýjum Rauðum krossi í Níkaragva“ en ekki liggur fyrir hvernig eigi að fjármagna þær aðgerðir.

Teknar eignarnámi

Deild Rauði krossins í landinu, sem var stofnuð árið 1958, er að mestu leyti fjármögnuð með framlagi innlendra stofnana. Ný lög kveða um að allar eignir félagsins verði teknar eignarnámi af stjórnvöldum í landinu.

Réttindasamtök í landinu gera ráð fyrir því að um 355 manns hafi látið lífið og um 2.000 manns særst þegar ríkisstjórnin reyndi að hemja mótmæli árið 2018.

Síðan þá hafi nánast allir andófshópar í landinu verið leystir upp og margir félagar þeirra handteknir eða jafnvel sendir í útlegð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert