Myndskeið: Rétt sluppu undan lestinni

Skjáskot úr myndskeiðinu.
Skjáskot úr myndskeiðinu.

Þrír vegfarendur í Bandaríkjunum náðu rétt í tæka tíð að yfirgefa bíl sem fastur var á lestarteinum áður en lest keyrði á bílinn á ógnarhraða.

Bandaríski fréttamiðillinn KLTV greinir frá þessu.

Atvikið átti sér stað í borginni Dallas í Texas, síðdegis á mánudag.

Myndband sem náðist af atvikinu sýnir að fólksbíll sat fastur undir hliði við lestarteinana. Þar má sjá barn og fullorðinn hlaupa úr bílnum og stuttu síðar annan fullorðinn rétt svo koma sér undan áður en lestin skellur í bílinn.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á svæðinu slasaðist enginn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert