Varasjóður og eignir rússneska seðlabankans upp á 7,4 milljarða svissneskra franka, eða um 1.100 milljarða króna, eru fastir í Sviss.
Efnahagsráðuneyti Sviss greindi frá þessu.
Allar millifærslur sem tengjast meðferð varasjóðs og eigna rússneska seðlabankans hafa verið bannaðar, frá því einum mánuði eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar í fyrra, sagði í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar kom einnig fram að „eignir bankans hafa verið kyrrsettar”.
Ríkisstjórn Sviss var upplýst um þetta eftir að nýjar reglur um að segja skuli opinberlega frá sjóðum í landinu, voru settar í mars.
Skrifstofa efnahagsmála, SECO, tók fram að gera þurfi greinarmun á heildarupphæð kyrrsettra eigna og heildarupphæð frystra sjóða og eigna í Sviss.
Frá upphafi stríðsins hefur Sviss, sem hefur lengi verið vinsæll áfangastaður fyrir ríka Rússa og eignir þeirra, fryst um 1.200 milljarða króna í rússneskum sjóðum og eignum sem hafa verið í eigu eða undir stjórn fólks sem hefur verið beitt refsiaðgerðum, fyrirtækja eða annarra.
Sviss, sem venjulega er hlutlaus þjóð, ákvað fjórum dögum eftir innrás Rússa að fylgja fordæmi Evrópusambandsins um refsiaðgerðir gegn Rússum. Bankar voru þannig skyldaðir til að veita upplýsingar um viðskiptavini eða fyrirtæki sem stjórnvöld beindu sjónum sínum að.