Tuttugu og fjögur grunnskólabörn urðu fyrir meiðslum, þar af tíu alvarlegum, í finnsku borginni Espoo, nágrannaborg Helsinki, þegar göngubrú hrundi undan þeim á tíunda tímanum í morgun að finnskum tíma. Voru um 40 börn, nemendur í 8. bekk Kalasatama-skólans, stödd á brúnni þegar óhappið varð.
Greindi finnska ríkisútvarpið YLE frá því í fyrstu fréttum sínum af atburðinum að 27 börn hefðu slasast er brúin lét undan en sú tala reyndist lægri er upp var staðið.
Talsmaður björgunarsveitarinnar Länsi-Uusimaa greinir finnskum fjölmiðlum frá því að brúin hafi verið hluti aðbúnaðar við byggingarframkvæmdir og í raun um hálfgerðan vinnupall að ræða.