„Ég held ég hafi aldrei séð neitt eins skelfilegt og þetta auk þess sem það er lífshættulegt,“ segir Elisabet Vike Vardheim, forstöðumaður dreifingarmála hjá norska raforkufyrirtækinu Statnett, í samtali við norska ríkisútvarpið NRK.
Á hún þar við þann leik unglinga í Froland í Agder-fylki að klífa burðarmöstur fyrir rafmagnslínur og birta myndskeið af athæfinu á samfélagsmiðlinum TikTok undir myllumerkinu #nærdødenopplevelse eða upplifun við dauðans dyr.
Ákváðu stjórnendur Statnett að kæra athæfið til lögreglu í kjölfar þess að hafa séð myndskeiðið sem skaut þeim vægast sagt skelk í bringu. „Ég þakka bara fyrir að þeir sem þarna áttu hlut að máli virðast hafa sloppið óskaddaðir frá þessu,“ segir Vardheim enn fremur.
Sá eða þeir sem birtu myndskeiðið á TikTok, sem gerðist í mars, fjarlægðu það síðar, en fréttamönnum NRK tókst að fá upplýsingar um að þarna hefðu unglingar búsettir í Froland verið á ferð. Afraksturinn af klifrinu var þeirra framlag til leiks eða bylgju sem nú fer sem eldur í sinu um TikTok og gengur út á að notendur miðilsins leggja sig í augljósan háska, jafnvel lífsháska, og birta af því myndefni.
„Í þessum leik eru þátttakendur að leggja líf sitt að veði,“ segir Helge Torsvik, deildarstjóri rannsóknardeildar lögreglunnar í Arendal og Froland, við NRK og staðfestir jafnframt að lögreglu hafi borist kæra vegna háttseminnar.
Í myndskeiðinu má sjá eitt ungmennanna fara háskalega nærri kapli sem flutt getur 400.000 volta spennu en til samanburðar er spenna venjulegrar rafmagnsinnstungu á heimili 240 volt.
„Í sjálfu sér er ekki refsivert að klifra í háspennumöstrum en eigendur þeirra banna það,“ segir deildarstjórinn, „auk þess sem það er heimskulegt og stórhættulegt.“
„Það er erfitt að gera sér annað í hugarlund yfir þessu myndskeiði en að þarna hafi fólk bara verið ljónheppið. Þetta jaðrar við óvitaskap. Þeir hafa bara verið ljónheppnir,“ segir Vardheim hjá Statnett að lokum.