Tíminn stóð í stað rétt fyrir klukkan 13.00 í Lundúnum í gær, þegar Stóri Ben (e. Big Ben) bilaði. Klukkan fræga er í Elísabetarturni í Westminsterhöll og stöðvaðist hún þegar klukkan var 12.55 og hringdi því ekki bjöllum sínum þegar klukkan sló 13.00.
Hálftíma eftir bilunina voru vísar klukkunnar færðir fram, en vantaði þó enn fimm mínútur upp á að klukkuturninn sýndi réttan tíma. Voru vísar hennar aftur færðir fram, en samkvæmt The Guardian, sýndi klukkan loks réttan tíma klukkan 13.47.
Talsmaður Westminsterhallar, þinghúss Bretlands, sagði klukkuviðgerðarmenn hafa haft hraðar hendur við að trekkja klukkuna og að hún sé nú aftur komin í eðlilegt horf.
Klukkan hringdi ekki um árabil á meðan á viðgerðum stóð í Elísabetarturni, til að vernda heyrn iðnaðarmanna, en sú ákvörðun hlaut mikla gagnrýni af hálfu þingmanna og þáverandi forsætisráðherra Theresu May.