Tveir skotnir til bana í Benz-verksmiðju

Lögregla og sjúkralið fóru strax á vettvang.
Lögregla og sjúkralið fóru strax á vettvang. AFP

Tveir eru látnir eftir skotárás sem átti sér stað í verksmiðju sem framleiðir Mercedez Benz-bifreiðar í bænum Sindelfingen í Þýskalandi. 

Talsmenn fyrirtækisins hafa greint frá þessu, að því er segir í umfjöllun Sky News. 

Saksóknarar í bænum, sem er skammt frá borginni Stuttgart, segja að 53 ára gamall karlmaður hafi verið handtekinn í tengslum við málið. 

AFP

Forsvarsmenn bílaframleiðandans segja að fólkið sem tengist árásinni starfi hjá öðru fyrirtæki sem þjónustar Mercedez Benz. 

Lögreglan fékk tilkynningu um málið kl. 7.45 í morgun að staðartíma (kl. 5.45 í morgun að íslenskum tíma). Ekki er vitað hvað manninum gekk til.

Lögreglan birti í morgun færslu á Twitter þar sem kom fram að lögregla og sjúkralið væru á vettvangi og að almenningur væri ekki í hættu. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert