Ákærður fyrir manndráp í neðanjarðarlest

Mótmæli hafa farið fram í New York vegna andlátsins.
Mótmæli hafa farið fram í New York vegna andlátsins. AFP/Spencer Platt

Daniel Penny verður ákærður fyrir manndrápið á Michael Jackson eftirhermunni, Jordan Neely. Neely lést eftir að Penny, fyrrverandi sjóliði bandaríska flotans, tók hann hálstaki um borð í neðanjarðarlest í New York fyrr í þessum mánuði. 

Blaðamaður um borð í lestinni tók atburðinn upp á síma sinn, en í upptökunni má sjá Penny halda Neely niðri með hálstaki í 2 mínútur og 55 sekúndur.

Glímdi við andleg veikindi og heimilisleysi

Neely var þekkt Micheal Jackson eftirherma í New York og sýndi oft listir sínar á Times Square og í neðanjarðarlestum borgarinnar. Hann var heimilislaus þegar hann lést og hafði nýlega yfirgefið geðdeild fyrr en áætlað var, um tveimur vikum fyrir árásina.  

Andlát Neely hefur vakið mikla reiði og umræður um skort á úrræðum og eftirfylgni fyrir heimilislausa og einstaklinga með geðheilbrigðisvandamál í New York. Heimilisleysi er eitt stærsta vandamál borgarinnar. 

Mótmæli hafa verið haldin í borginni en margir telja kerfið hafa brugðist Neely. Segja margir andlát hans vera enn eitt dæmið um morð á svörtum manni, sem í þokkabót var fátækur, veikur og heimilislaus. Þess má geta að Daniel Penny er hvítur.

Dauði Neely hefur vakið umræður um félagskerfið í New York …
Dauði Neely hefur vakið umræður um félagskerfið í New York en hann var heimilislaus. AFP/Michael M. Santiago

Átti hvorki neitt til að borða né drekka

Juan Alberto Vazquez, blaðamaðurinn sem tók upp myndskeiðið, sagði Neely hafa hrópað á aðra farþega lestarinnar að hann ætti ekkert að borða eða drekka, en hefði ekki veist að neinum líkamlega, þegar Penny greip hann hálstaki. 

Í myndskeiðinu má heyra Penny biðja hina farþegana um að hringja í neyðarlínuna og óska eftir aðstoð. Einnig má sjá tvo aðra farþega aðstoða Penny við að halda Neely niðri, en ekki liggur fyrir hvort þeir verði einnig ákærðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert