Bandaríkjamaðurinn Trevor Jacob hefur viðurkennt að hafa vísvitandi grandað lítilli flugvél í Kaliforníu í Bandaríkjunum fyrir áhorf á YouTube. Hann var einn um borð í vélinni þegar atvikið átti sér stað og komst lífs af vegna fallhlífar sem hann hafði meðferðis. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsisvist fyrir athæfið.
Þegar hinn 29 ára gamli Jacob birti myndskeið af flugvélinni brotlenda í desember árið 2021 gaf hann til kynna að um slys hefði verið að ræða. Myndskeiðið hefur verið spilað hátt í þrjár milljónir skipta.
BBC greinir frá, en í umfjöllun miðilsins segir að Jacob hafi viðurkennt að hafa hreinsað til á vettvangi eftir brotlendinguna og þar með hindrað rannsókn lögregluyfirvalda. Þá hafi myndskeiðið verið hluti af samningi sem hann gerði við bakhjarl.
Flugið umrædda átti sér stað í nóvember árið 2021. Jacob, sem er flugmaður og fallhlífastökkvari, tók á loft frá flugvelli í Santa Barbara í Kaliforníu með myndavélar, sjálfustöng og fallhlíf meðferðis.
„Hann ætlaði sér aldrei að komast á leiðarenda, þess í stað ætlaði hann sér að kasta sér frá vélinni meðan á fluginu stóð og taka upp myndskeið af sjálfum sér falla til jarðar í fallhlíf og vélinni er hún hrapaði,“ segir í yfirlýsingu ákæruvaldsins.
Flugvélin brotlenti í Los Padres skóginum þegar 35 mínútur voru frá flugtaki. Jacob labbaði síðan að flugvélarbrakinu til að mynda það.
Nokkrum áhorfendum þótti „slysið“ grunsamlegt þar sem Jacob hafði farið um borð með fallhlífina á sér. Þá þótti ekkert benda til þess að hann hefði gert tilraun til þess að lenda vélinni örugglega.
Jacob tilkynnti brotlendinguna sem slys til Samgönguöryggisráðsins, sem sagði áhrifavaldinn ábyrgan fyrir því að varðveita brakið. Jacob hélt því síðar fram að hann væri ekki með upplýsingar um hvar vettvangur brotlendingarinnar væri.
Hann virðist þó hafa vitað það þar sem hann sneri síðar á vettvang til að endurheimta brakið sem hann síðan eyðilagði.
Flugmannsskírteini Jacobs hefur verið afturkallað og á hann að mæta fyrir dóm á næstu vikum.