Grunur um brot gegn viðskiptabanni

Norska öryggislögreglan PST rannsakar meint brot tuttugu fyrirtækja í landinu …
Norska öryggislögreglan PST rannsakar meint brot tuttugu fyrirtækja í landinu gegn viðskiptabanni við Rússland. Hafnarstjórinn í Tromsø játar handvömm sína við NRK. Ljósmynd/Politiforum.no

Tuttugu norsk fyrirtæki hafa verið tekin til rannsóknar hjá öryggislögreglunni PST vegna gruns um brot þeirra gegn viðskiptabanninu gagnvart Rússlandi og sendi norska utanríkisráðuneytið út áminningu í dag þar sem það benti á að viðskiptabanninu skyldi framfylgja gagnvart rússneskum skipum.

PST gefur ekkert upp um hvaða fyrirtæki þar séu undir smásjánni en það var norska staðarblaðið Sør-Varanger avis sem fyrst greindi frá málinu. Auk þess að vera til rannsóknar vegna meintra viðskiptabannsbrota leikur einnig grunur á að fyrirtækin hafi brotið gegn lögum um eftirlit með vöruútflutningi.

Trond Hugubakken, upplýsingafulltrúi PST, staðfestir við norska ríkisútvarpið NRK að tuttugu mál hafi verið tekin til rannsóknar eftir febrúarmánuð í fyrra sem var tími innrásar Rússa í Úkraínu sem kostaði þá viðskiptabann.

Trond Hugubakken upplýsingafulltrúi kannast við að PST hafi haft fyrirtækin …
Trond Hugubakken upplýsingafulltrúi kannast við að PST hafi haft fyrirtækin til rannsóknar um hríð. Ljósmynd/PST

Vita upp á sig sökina

„Grunur leikur á hugsanlegum brotum gegn viðskiptabannslögunum gagnvart Rússlandi og útflutningseftirlitslögum. Hann beinist að lögbrotum sem eru alvarleg í sjálfu sér,“ segir Hugubakken og vill ekkert tjá sig um hvar í landinu meint brot hafi verið framin. Hafa hafnaryfirvöld í Tromsø þó látið uppi að þar hafi hugsanleg brot verið framin.

„Við viðurkennum að við höfum ekki sett okkur nægilega vel inn í regluverkið,“ segir Knut-Ivar Bendiksen hafnarstjóri, „við munum nú grípa til aðgerða og fylgja þeim tilmælum sem norsk yfirvöld hafa sett varðandi það hvaða þjónustu okkur leyfist að veita rússneskum togurum.“

Í síðustu viku boðaði slippfyrirtækið Kimek í Kirkenes hópuppsagnir og kenndu því um að yfirvöld hefðu hert viðskiptabannsreglurnar. Því vísar utanríkisráðuneytið á bug. „Reglurnar hafa verið óbreyttar frá upphafi. Það sem við vorum að gera í dag er að minna alla hlutaðeigendur á að óleyfilegt er að veita rússneskum skipum viðhaldsþjónustu í Noregi,“ segir Eivind Vad Petersson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, við NRK um málið.

NRK

Sør-Varanger avis (læst áskriftargrein)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert