Krýningarathöfn Karls III Bretakonungs og Kamillu drottningar breyttist á augabragði í martröð fyrir hina 36 ára gömlu Alice Chambers þegar breska lögreglan handtók hana og hélt í haldi í 13 klukkustundir.
Lögreglan kveðst nú vera að skoða atvikið og safna upplýsingum til að fá fyllri mynd af atburðarásinni.
Chambers, sem er mikill aðdáandi bresku konungsfjölskyldunnar, er frá Ástralíu en býr í Lundúnum og ætlaði að fylgjast með krýningarathöfninni þegar atvikið átti sér stað.
Skömmu áður en athöfnin hófst var Chambers fyrir tilviljun stödd í grennd við Just Stop Oil-mótmæli. Í aðgerðum lögreglu vegna mótmælanna var Chambers færð í handjárn, fingraför hennar skráð og henni haldið í aftursæti lögreglubíls í margar klukkustundir, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hennar að útskýra að hún væri ekki þátttakandi í mótmælunum. BBC greinir frá.
„Ég var bara sitjandi þarna að bíða eftir því að krýningarathöfnin byrjaði. Áður en ég veit af er lögreglan komin til að handtaka fjölda fólks,“ segir Chambers.
„Ég reyndi að gera þeim ljóst að ég væri ekki hluti af hópnum en það breytti engu. Ég lét þau hafa tengiliðaupplýsingarnar mínar. Ég sýndi þeim skilríkin mín en það hafði engin áhrif.“
Eftir að hafa varið bróðurpartinn úr deginum í haldi lögreglu var Chambers loks færð til yfirheyrslu.
„Þeir spurðu mig hvað ég væri að gera þarna. Ég útskýrði allt fyrir þeim og þeir litu hvor á annan í áfalli.“
Chambers segir atvikið hafa verið mikið áfall fyrir sig. Aldrei hefði hún búist við að enda í haldi lögreglunnar.
„Það þarf greinilega að koma á einhverjum ferlum, eða fylgja þeim eftir sem eru til staðar.“
Chambers var að lokum sleppt úr haldi en missti af fagnaðarlátum tengdum krýningarathöfninni. Lögreglan kveðst nú hafa atvikið til skoðunar.