Imran Khan látinn laus

Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, yfirgaf dómshúsið í Íslamabad í …
Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, yfirgaf dómshúsið í Íslamabad í dag. AFP

Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, hefur verið látinn laus úr fangelsi gegn tryggingu. 

Khan yfirgaf dómshúsið í Íslamabad í dag, degi eftir að hæstiréttur úrskurðaði handtöku hans ólögmæta. Hann var handsamaður af herdeild landsins á þriðjudaginn, þegar hann var staddur í bygg­ingu Hæsta­rétt­ar lands­ins í Islama­bad, en hann er ákærður fyrir spillingu. 

Áður en hann yfirgaf dómstóla, fór hann fram á fyrirbyggjandi tryggingar gegn öðrum ákærum sem hann kvaðst eiga yfir höfuð sér, þar á meðal fyrir hryðjuverk, uppreisn og guðlast.

Fyrrum forsætisráðherrann er ákærður vegna ólög­legrar sölu á mun­um sem hann hefur fengið gef­ins frá er­ind­rek­um annarra landa, á meðan hann var í embætti. 

Í ádeilum við herinn

Talið er að herinn hafi hjálpað Khan að vinna kosningarnar árið 2018, en báðir aðilar hafa neitað þeim sökum. Khan var vikið úr embætti árið 2022 í kjölfar vantrauststillögu og hefur verið gífurlega gagnrýninn á herinn allar götur síðan.

Handtaka hans fyrir utan dómshúsið vakti mikla reiði meðal stuðningsmanna hans og mótmæli og óeirðir brutust út í kjölfarið víða um landið. Talið er að 2.000 manns hafi verið handteknir og minnst 10 manns látist. 

Mótmæli hafa brotist út víða um Pakistan í kjölfar handtöku …
Mótmæli hafa brotist út víða um Pakistan í kjölfar handtöku Khan. AFP

Sagður hvetja til óeirða

Gagnrýnendur Khans og núverandi forsætisráðherra landsins hafa ásakað hann um að hvetja til óeirða og mótmæla og samfélagsmiðlum sínum, en dómari hefur gert honum að biðja stuðningsmenn sína um að láta af mótmælunum. 

Dorrit Moussaief, fyrrverandi forsetafrú Íslands, kvaðst harmi slegin yfir handtöku Khans og segir hann saklausan, en þau hafa þekkst í meira en hálfa öld að hennar sögn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert