201 lík liðsmanna Good News International Church sértrúarsafnaðarins hefur fundist í Shakahola-skógi í Kenía.
Lögregla fann 22 lík í dag en Paul Nthenge Mackenzie, leiðtogi Good News International Church, á að hafa tjáð fylgjendum sínum að þeir myndu hitta Jesú ef þeir sveltu sig.
26 hafa verið handteknir vegna málsins, þar á meðal Mackenzie. Lögregla greinir frá því að nokkrir þeirra sem voru handteknir sáu um að fólkið svelti sig og yfirgaf ekki skóginn.
Leit verður haldið áfram á þriðjudag en að sögn lögreglu er um 600 manns saknað.
Mackenzie starfaði sem leigubílstjóri áður en hann stofnaði Good News International Church árið 2003.