Réðust á heimaborg úkraínska atriðsins

Tvíeykið Tvorchi á stóra sviðinu í kvöld.
Tvíeykið Tvorchi á stóra sviðinu í kvöld. AFP/Oli Scarff

Eldflaugum var skotið á heimaborg hljómsveitar úkraínska atriðsins í Eurovision er hún steig á sviðið í Liverpool í kvöld.

Volodymyr Trush, úkraínskur herforingi, í borginni Ternopil sagði að tveir hefðu slasast í árásinni. Þá staðfesti Serhiy Nadal, borgarstjóri Ternopil, að tvö vöruhús hefðu orðið fyrir tjóni. 

Tíu mínútum áður en tvíeykið Tvorchi steig á svið í Liverpool greindu þeir frá því að verið væri að ráðast á heimaborg þeirra. 

Dúettinn samanstendur af Andrii Hutsuliak og Jeffery Kenny, en sá síðarnefndi er upprunalega frá Nígeríu en hefur búið lengi í Úkraínu.

View this post on Instagram

A post shared by TVORCHI (@tvorchi_official)

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert