Samið um vopnahlé á Gasa-ströndinni

Samið hefur verið um vopnahlé á Gasa-ströndinni eftir fimm daga átök sem hafa leitt til dauða að minnsta kosti 33 Palestínumanna á svæðinu og tveggja einstaklinga í Ísrael. 

Vopnahléið hófst klukkan 19 í kvöld að staðartíma samkvæmt egypskum og palestínskum heimildum AFP-fréttaveitunnar. 

Fréttamenn AFP urðu vitni að eldflaugaskoti á Gasa 45 mínútum áður en vopnahléið hófst.

Loftárásirnar síðustu daga eru þær mannskæðustu í deilum Ísrael og Palestínu síðan í ágúst er nærri 50 Palestínumenn létust. 

Fréttamenn AFP urðu vitni að eldflaugaskoti á Gasa 45 mínútum …
Fréttamenn AFP urðu vitni að eldflaugaskoti á Gasa 45 mínútum áður en vopnahléið hófst. AFP/Said Khatib
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert