Segir af sér eftir bruðl í krýningarathöfn Karls

Það var mikið um dýrðir á krýningarathöfn Karls Þriðja Bretlandskonungs
Það var mikið um dýrðir á krýningarathöfn Karls Þriðja Bretlandskonungs AFP

Utanríkisráðherra Papúa Nýju-Gíneu, Justin Tkatchenko, sagði af sér í gær í kjölfar mótmæla vegna bruðls sendinefndar ríkisins í tengslum við krýningarathöfn Karls III Bretakonungs.

Dóttir Tkatchenko slóst í hópinn með sendinefndinni, sem taldi 20 manns, og birti myndskeið af ferðalaginu á TikTok. Þar sýndi hún svipmyndir úr verslunarferð í Singapúr, fyrsta farrýmis-flugmiða og veglegar veitingar í setustofu flugvallar. 

Kostnaðurinn vel yfir 100 milljónum króna

Mótmælendur söfnuðust saman fyrir framan þinghúsið í höfuðborg Papúa Nýju-Gíneu, Port Moresby. Fjölmiðlar sem BBC vitnar í segja kostnað ferðarinnar hlaupa á því sem nemur 125 milljónum íslenskra króna.

Þó Nýja-Gínea hafi öðlast sjálfstæði árið 1975 er ríkið hluti af Breska samveldinu og Karl Bretlandskonungur æðsti þjóðhöfðingi þess. 

Sagði gagnrýnendur frumstæða

Tkatchenko hafði áður sagt þá gagnrýni sem hann og dóttir hans urðu fyrir ámælisverða og sagði mótmælendur meðal annars vera frumstæð dýr.

„Afbrýðissemi er bölvun. Þetta fólk sýnir að það hefur ekkert annað að fyrir stafni en að níðast á fólk sem er að reyna að vinna fyrir sínu landi.“

Tkatchenko baðst síðar afsökunar á þessum ummælum og sagði þeim hafa verið tekið á rangan hátt. Þau áttu einungis að beinast að þeim sem hefðu sent dóttur hans meiðandi athugasemdir og hótanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert