Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, kom til Rómar, höfuðborgar Ítalíu, í morgun þar sem hann á skipulagða fundi með Sergio Mattarella, forseta Ítalíu, Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Francis páfa.
Þetta mun vera fyrsta heimsókn forsetans til Ítalíu frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar á síðasta ári.
Today in Rome. I'm meeting with President of Italy Sergio Mattarella, Prime Minister of Italy @GiorgiaMeloni and the Pope @Pontifex. An important visit for approaching victory of Ukraine! 🇮🇹🤝🇺🇦🤝🇻🇦
— Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) May 13, 2023
„Ég verð í Róm í dag,“ segir í tísti Selenskís.
Mikill viðbúnaður er í Róm vegna heimsóknarinnar og hafa öryggissveitir lokað stórum hverfum í höfuðborginni. Með forsetanum fylgir löng bílalest frá flugvellinum sem ítalskir miðlar hafa birt myndskeið af.