Einn stærsti skóframleiðandi Víetnam, sem framleiðir meðal annars skóbúnað fyrir Nike og Adidas, hefur í hyggju að segja upp hart nær sex þúsund starfsmönnum um næstu mánaðamót.
Niðurskurðurinn er tilkominn vegna þverrandi eftirspurnar, að sögn ríkismiðils Víetnam.
Taívanska félagið PouYuen Vietnam er útibú taívanska veldisins Pou Chen Group sem er einn stærsti framleiðandi merkjavöruskóbúnaðs á heimsvísu.
PouYuen er einn stærsti vinnustaður Ho Chi Minh-borgarinnar með um 50 þúsund starfsmenn á launaskrá. Þetta er ekki fyrsta hópuppsögn fyrirtæksisins á árinu en 3.000 tímabundnum auk 3.000 fastráðinna starfsmanna var sagt upp fyrr á þessu ári.
Hækkandi framfærslukostnaður á Vesturlöndum hefur leikið hagkerfi Víetnam grátt sem reiðir sig meðal annars á útflutning fatnaðar, húsgagna og framleiddra matvæla.
Ríflega 630 þúsund starfsmönnum var annað hvort sagt upp eða vinnutími þeirra skertur á síðasta ári samkvæmt tölum frá vinnumálaráðuneyti Víetnam.