Forseti Hvíta-Rússlands heilsulítill

Alexander Lúkasjenkó er sagður heilsulítill þessa dagana en hann hefur …
Alexander Lúkasjenkó er sagður heilsulítill þessa dagana en hann hefur ekki sést opinberlega í tæpa viku. AFP

Forseti Hvíta-Rússlands, Alexander Lúkasjenkó, var ekki viðstaddur hátíð sem haldin var fyrr í dag til að fagna ríkistáknum fyrrverandi Sovétríkjanna, þar á meðal fána þess og þjóðsöng. Fregnir hafa borist af heilsuleysi forsetans en hinn 68 ára gamli leiðtogi hefur ekki sést opinberlega undanfarna fimm daga.

Sleppti hádegisverði með Pútín

Roman Golovsjenkó, forsætisráðherra Hvíta-Rússlands, óskaði Hvít-Rússum til hamingju fyrir hönd Lúkasjenkós í sjónvarpsathöfn sem fram fór á Minsk-torginu. Lúkasjenkó hefur ekki sést opinberlega síðan á þriðjudag þegar hann ferðaðist til Moskvu til að taka þátt í hátíðarhöldum til að minnast sigurs Sovétríkjanna á nasistum árið 1945.

Virtist þreyttur og lítur illa út

Að sögn fréttaveitunnar AFP tóku margir blaðamenn eftir því að Lúkasjenkó virtist þreyttur í Moskvu en hann sleppti meðal annars hádegisverði sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti stóð fyrir og leiðtogar Armeníu og Mið-Asíuríkja voru viðstaddir. Þá var haft eftir blaðamanni í Kreml, að nafni Andrei Kolesníkóv, að Lúkasjenkó liti illa út.

Hefur verið við völd í tæp 30 ár

Talsmenn Lúkasjenkós hafa ekki tjáð sig um dvalarstað hans að undanförnu. Hann hefur verið við völd í Hvíta-Rússlandi síðan 1994 og vann sjötta kjörtímabilið sitt í kosningunum árið 2020. Fjöldi fólks mótmælti niðurstöðum þeirra kosninga á götum úti og taldi brögð í tafli. Með hjálp Pútíns barði Lúkasjenkó niður hina sögulegu mótmælahreyfingu og ýmist fangelsaði eða sendi stjórnarandstæðinga sína í útlegð. 

Þegar Pútín sendi hermenn til Úkraínu í febrúar 2022 lýsti Lúkasjenkó eindregnum stuðningi sínum við hann og bauð honum jafnframt að nota hvítrússneskt landsvæði sem vettvang fyrir hernaðaraðgerðir sínar. Þá bauð hann einnig særðum rússneskum hermönnum aðhlynningu í Hvíta-Rússlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert