Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði Þýskaland vera sannan vinna og áreiðanlegan bandamann á fundi með starfsbróður sínum, Frank Walter Steinmeier, forseta Þýskalands.
Úkraínuforsetinn þakkaði Berlín stuðninginn í baráttu Kænugarðs við Moskvu í formlegri heimsókn forsetans í Þýskalandi.
„Á erfiðustu tímum í seinni tíð Úkraínu hefur Þýskaland reynst sannur vinur og traustur bandamaður, sem stendur staðfast við hlið úkraínsku þjóðarinnar í baráttunni við að verja frelsi og lýðræðisleg gildi,“ skrifaði Selenskí í gestabók forsetabústaðarins í Bellebue höll.
Selenskí fundaði einnig með kanslara Þýskalands, Olaf Scholz, í dag og biðlaði til hans að veita Úkraínu stuðning í beiðni sinni um að fá orrustuþotur frá Vesturlöndunum til að herja gagnsókn gegn Rússum.