Brimbrettamaður er talinn af eftir að hafa orðið fyrir hákarlaárás við sunnanverða strönd Ástralíu um helgina. Þetta segir ástralska lögreglan en hún fann leifar af blautgalla við ströndina.
Maðurinn hét Simon Baccanellow og var 46 ára gamall. Hann varð fyrir árásinni á laugardag. Lögreglan segir í tilkynningu að bútur úr blautgalla hafi fundist við ströndina og brot úr pólýsýríni, en úr því eru brimbretti oft gerð.
Leitinni á að halda áfram þegar háflóði lýkur sem á að gerast á næstu dögum að sögn lögreglu.
Talsmaður björgunarsveitar á svæðinu segir að margir hafi verið nálægt brimbrettamanninum og orðið vitni að árásinni.