Eldflaugaárás á úkraínskt sjúkrahús

Eyðileggingin í borginni Avdiivka í Donetsk-héraði er mikil.
Eyðileggingin í borginni Avdiivka í Donetsk-héraði er mikil. AFP/Anatolii Stepanov

Fjórir létust er rússneskri eldflaug var skotið á sjúkrahús í Austur-Úkraínu í morgun.

Árásin var gerð á borgina Avdiivka í Donetsk-héraði. 

Eldflaugaárásir Rússa víðar í Úkraínu í morgun eyðilögðu 57 íbúðarhús á 13 svæðum að sögn úkraínsku lögreglunnar. 

Í morgun var greint frá því að úkraínsk stjórn­völd fögnuðu sókn her­sveita sinna að fremstu víg­línu nærri borg­inni Bak­hmút. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert