Haraldur konungur kominn heim af sjúkrahúsi

Haraldur á friðarverðlaunahátíð Nóbels í ráðhúsinu í Osló 10. desember …
Haraldur á friðarverðlaunahátíð Nóbels í ráðhúsinu í Osló 10. desember 2022 AFP/Sergei Gapon

Haraldur V. Noregskonungur er kominn heim eftir vikulanga sjúkrahúsdvöl. Áfram verður þó fylgst vel með honum líkt og fram kemur í tilkynningu frá konungshöllinni, en Haraldur hefur dvalið á sjúkrahúsi vegna sýkingar.

Þjóðhátíðardagur Noregs er haldinn 17. maí ár hvert en þá fagna Norðmenn viðtöku stjórnarskrár sinnar. Ekki hefur endanlega verið ákveðið hvort Haraldur taki þátt í hátíðarhöldunum á miðvikudaginn en búast má við tilkynningu frá konungshöllinni þess efnis á morgun.

Tilkynnt var um innlögn Haralds á mánudaginn en þetta er í þriðja sinn sem hann hefur verið lagður á sjúkrahús frá því síðasta sumar.

Haraldur er 86 ára gamall en hann hefur verið konungur í 32 ár. Hann er barnabarn Hákonar VII., fyrsta norska konungsins eftir að landið fékk sjálfstæði frá Svíþjóð árið 1905.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert