Í lífstíðarfangelsi fyrir morð á sjúklingum

Hjúkrunarfræðingurinn sprautaði sjúklinga með róandi lyfjum og öðrum lyfjakokteilum
Hjúkrunarfræðingurinn sprautaði sjúklinga með róandi lyfjum og öðrum lyfjakokteilum AFP/Fred Tanneau

Þýskur hjúkrunarfræðingur hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa orðið tveimur sjúklingum að bana með því að sprauta þá með lyfjum, sem ekki var ávísað á sjúklingana, þegar hann vildi vera „látinn í friði“ á vakt.

Mario G, 27 ára hjúkrunarfræðingur, var fundinn sekur um tvö manndráp og sex manndrápstilraunir.

Mario viðurkenndi fyrir héraðsdómi í München að hafa sprautað sjúklinga með róandi lyfjum og öðrum lyfjakokteilum, en að sögn vildi hann vera „látinn í friði“ á vaktinni. Sjúklingarnir tveir sem létust voru 80 og 89 ára að aldri. 

Þrjár manndrápstilraunanna beindust að menntamanninum og rithöfundinum Hans Magnus Enzensberger í nóvember 2020. Enzensberger lifði þó af en lést tveimur árum síðar af náttúrulegum orsökum, 93 ára að aldri. 

Að sögn saksóknara gaf Mario lyfin því hann vildi vera látinn í friði þegar hann mætti þunnur á vakt. 

Minnir á mál Hoegels

Dómurinn minnir á mál þýska hjúkrunarfræðingsins Niels Hoegel sem árið 2019 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa orðið 85 sjúklingum að bana í sinni umsjá.

Hoegel, sem er talinn afkastamesti raðmorðingi Þýskalands, myrti sjúklinga með banvænum sprautum á árunum 2000-2005 en þá var hann handtekinn fyrir verknaðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert