Khan leiddur fyrir dómara í dag

Imr­an Khan fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra Pak­ist­ans verður leiddur fyrir dóm í dag en tæp vika er síðan hann var handsamaður af her­deild lands­ins. 

Miklar óeirðir brutust út í borgum Pakistans eftir handtökuna. Khan var látinn laus á föstudag eft­ir að hæstirétt­ur úr­sk­urðaði hand­töku hans ólög­mæta. 

Forsætisráðherrann fyrrverandi er ákærður vegna ólög­legr­ar sölu á mun­um sem hann hef­ur fengið gef­ins frá er­ind­rek­um annarra landa á meðan hann var í embætti. Khan verður leiddur fyrir dómara í heimaborg sinni, Lahore, í dag. 

„Khan verður leiddur fyrir dóm í dag vegna ákæra sem voru lagðar fram vegna atburða sem gerðust 9. og 12. maí,“ sagði Intazar Hussain Panjutha lögmaður við AFP-fréttaveituna. 

Að minnsta kosti níu létust í óeirðunum og hundruð lögreglumanna slösuðust. Þá voru rúmlega sjö þúsund manns fangelsaðir í síðustu viku. 

Khan er sjötugur og tísti að hann gerði ráð fyrir að verða handsamaður aftur.

Bifreið Imran Khan á leið til dómstólsins í Lahore.
Bifreið Imran Khan á leið til dómstólsins í Lahore. AFP/Murtaza Syed
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert