Mörgum lestarfarþegum brá í brún þegar ræða Adolfs Hitlers, leiðtoga þýskra nasista, var spiluð í hljóðkerfi lestar á leið frá Bregenz til Vínarborgar í Austurríki í gær.
Breska ríkistútvarpið greinir frá því að setningarnar: „Heil Hitler“ og „Sieg Heil“ hafi einnig heyrst úr hljóðkerfi lestarinnar í stað reglulegra tilkynninga. Lestarstjórinn segir að fjölmörg atvik af þessu tagi hafi átt sér stað á undanförnum dögum.
BBC hefur eftir farþega lestarinnar, sem ferðast á milli Vínarborgar og Bregenz, að honum hafði verið mjög brugðið.
David Stögmüller þingmaður Græningjaflokksins segir að ræðan hafi verið spiluð í kerfinu rétt áður en lestin stoppaði í Vínarborg.
„Við heyrðum tvö hljóðbrot,“ segir hann. „Fyrst voru þrjátíu sekúndur af ræðu Hitlers og síðan heyrði ég „Sieg Heil“.“
Stögmüller segir að starfsfólk lestarinnar hafi ekki getað slökkt á upptökunni og það var ómögulegt fyrir þau að flytja eigin tilkynningar. „Einn starfsmaður var gjörsamlega miður sín,“ segir hann.
Stögmüller segir einnig að sér hafi borist tölvupóstur frá manni sem var í lestinni ásamt eldri konu sem lifði af útrýmingarbúðir nasista í seinni heimsstyrjöldinni. „Hún var grátandi,“ hefur hann eftir farþeganum.
Í tilkynningu frá austurríska lestarfyrirtækinu ÖBB kemur fram að fyrirtækið harmi atvikið og búið sé að tilkynna það til lögreglu.