Rússneska varnarmálaráðuneytið sagðist í yfirlýsingu í dag hafa snúið þýskri og franskri herflugvél frá lofthelgi Rússlands yfir Eystrasalti.
Samkvæmt yfirlýsingunni var annars vegar um að ræða þýska P-3C Orion-eftirlitsflugvél og hins vegar franska Atlantique-kafbátavarnarflugvél.
Rússneska varnarmálaráðuneytið sagði að SU-2-orrustuþota hefði verið notuð til að stöðva vélarnar sem taldar eru hafa reynt að rjúfa rússneska lofthelgi.
Flug rússnesku orrustuþotunnar var framkvæmt í ströngu samræmi við alþjóðlegar reglur um notkun loftrýmis yfir hlutlausu hafsvæði að því er fram kemur í yfirlýsingunni, og án þess að fara yfir flugleiðir eða nálgast með hættulegum hætti flugvél erlends ríkis.
Þá sagði að rússneska orrustuþotan hefði að loknu verkefninu snúið aftur heilu og höldnu til síns heima.