Sex létust í eldsvoða á farfuglaheimili

Að minnsta kosti sex manns létust í eldsvoða á farfuglaheimili í Wellington, höfuðborg Nýja-Sjálands, í dag. New Zealand Herald segir frá.

Chris Hipkins, forsætisráðherra Nýja Sjálands, segir að staðfest sé að sex manns hafi látið lífið í eldsvoðanum en á þriðja tug sé enn saknað.

Eldur kviknaði í fjögurra hæða farfuglaheimilinu Loafers Lodge í miðborg Wellington þegar klukkan var að verða hálf eitt að nóttu til að staðartíma, eða klukkan hálf eitt á hádegi í dag á íslenskum tíma.

Slökkvilið bjargaði tugum manna úr byggingunni en efsta hæðin var alelda þegar slökkvilið mætti á vettvang.

Grunur um íkveikju

Verið er að kanna frekara mannfall í brunarústunum og lögregla leitar upplýsinga um hversu margir gætu hafa verið inni í byggingunni þegar hún brann.

Heimildir New Zealand Herald herma að það liggi grunur um að íkveikja hafi verið valdurinn að eldinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert