Að minnsta kosti þrír hafa látið lífið í skotárás í Farmington í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Tveir lögreglumenn eru særðir.
Byssumaðurinn var skotinn til bana á vettvangi og hefur ógninni verið afstýrt, að sögn lögreglu í Farmington.
Fjöldamorð í Bandaríkjunum á þessu ári eru orðin fleiri en 215 talsins, samkvæmt gögnum stofnunarinnar Gun Violence Archive.