Hvítrússneski stjórnarastæðingurinn, Svetlana Tsíkhanovskaja, tísti í dag að Hvít-Rússar ættu að „undirbúa“ sig vegna hrakandi heilsu Alexanders Lúkasjenkós, forseta Hvíta-Rússlands.
„Margar sögusagnir hafa komist á kreik um heilsu Lúkasjenkós einræðisherra. Fyrir okkur þýðir það einungis eitt, við skulum vera undirbúin fyrir allar mögulegar aðstæður,“ tísti Tsíkhanovskaja.
Hún nefndi að koma þyrfti í veg fyrir að Rússland blandaði sér í möguleg stjórnarskipti til þess að tryggja að Hvíta-Rússland verði lýðræði.
There are many rumors about the dictator Lukashenka's health. For us, it means only one thing: we should be well prepared for every scenario. To turn Belarus on the path to democracy & to prevent Russia from interfering. We need the international community to be proactive & fast. pic.twitter.com/qfnsnPYBMZ
— Sviatlana Tsikhanouskaya (@Tsihanouskaya) May 15, 2023
Lúkasjenkó er 68 ára gamall og hefur verið við völd síðan árið 1994. Hann hefur ekki látið sjá sig opinberlega í sex daga og ekki mætt á mikilvæga viðburði.
Hann sást síðast á Rauða torginu í Moskvu á Sigurdeginum 9. maí en var ekki viðstaddur hádegisverðarboð Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta sama dag.
Rússneskir og hvítrússneskir blaðamenn sögðu Lúkasjenkó líta út fyrir að vera heilsuveilan. Þá ávarpaði hann ekki hvítrússneska hermenn á Sigurdeginum líkt og hefð er fyrir. Yfirvöld hafa ekki tjáð sig um fjarveru Lúkasjenkós.
Tsíkanovskaja var dæmd í 15 ára fangelsi í heimalandinu í mars fyrir að leiða mótmæli gegn núverandi stjórn landsins. Hún verður viðstödd leiðtogafund Evrópuráðsins í Hörpu sem hefst á morgun.